Hægt að tengja við helstu tónlistarstreymisveitur.
Hægt að nota með Airplay 2 svo þú getur streymt hljóði beint úr Apple-tækinu þínu.
Hægt að nota sem stakan hljóðgjafa eða með öðrum SYMFONISK eða Sonos-vörum til að stækka hljóðheiminn þinn.
SYMFONISK gólflampi með Wi-Fi hátalara lýsir upp heimilið og lætur það hljóma vel. Hentar vel í svefnherbergið eða við sófann í stofunni.
Gólflampi og hátalari með bambusskermi sem er hannaður þannig að tækið fellur náttúrulega inn í fallegan skrautmun – stílhreint og fallegt heimili.
Lampinn er sterklegur og stöðugur og er því ekki líklegur til að detta.
Þú getur streymt tónlist, hlaðvarpi eða útvarpi í gegnum WiFi án þess að símtöl eða tilkynningar trufli. Tónlistin heldur áfram þrátt fyrir að síminn eða spjaldtölvan sé ekki nálægt.
Hlustaðu á hlaðvarp í svefnherberginu á meðan einhver annar spilar tónlist í stofunni, eða láttu alla hátalara hússins spila sömu tónlistina samtímis. Þú getur hækkað og lækkað í hverjum hátalara fyrir sig eða öllum í einu.
Þú getur parað alla hátalara úr SYMFONISK línunni saman og SONOS hátalara svo þeir spili sömu tónlistina á sama tíma – þú getur hlustað alls staðar á heimilinu.
Hægt að nota með Spotify Connect sem þýðir að þú getur streymt hljóðinu beint frá Spotify-appinu í hátalarann.
Þú getur tengt tvo eins WiFi-hátalara saman til að fá víðóma hljóm. Þú getur einnig tengt einn gólflampa með hátalara við lampafót með WiFi-hátalara.