Þú lengir endingartíma viðarins með því að bera á hann olíu, vax, lakk eða bæs, og það auðveldar þér að þrífa hann.
Það er auðvelt að ryksuga undir rúminu til að halda rýminu hreinu og rykfríu.
Fyrirferðarlítil hönnunin hentar vel í lítið rými eða undir súð svo þú getir nýtt plássið til fulls.
Sterkleg grindin er úr gegnheilli furu. Litur, áferð og náttúrulegar misfellur í viðnum gera hvert rúm einstakt.
Það er nægt pláss fyrir rúmfatahirslur undir rúminu – hentar vel fyrir aukasængur og kodda.
LURÖY rimlarúm með bogadregnum rimlum fylgir líkamsþyngd þinni og styður við líkamann á meðan botninn hleypir lofti í gegn sem heldur dýnunni ferskri.