DVALA
Teygjulak,
160x200 cm, ljósgrátt

2.290,-

Magn: - +
DVALA
DVALA

DVALA

2.290,-
Vefverslun: Til á lager
DVALA teygjulakið er úr 100% náttúrulegri bómull sem andar vel og dregur í sig raka. Þú getur því sofið við gott hitastig alla nóttina. Það verður mýkra með hverjum þvotti.

Energy and Resources

Förum vel með verðmætar auðlindir

DVALA rúmföt úr hreinni bómull anda og eru þægileg viðkomu. Mjúkir og fölir drapplitaðir, bleikir og bláir tónar eru búnir til með nýrri litatækni sem notar þurrlitarefni. Aðferðin sparar efni, orku og vatn en við spörum um 237.250.000 lítra af verðmætu vatni á hverju ári. Þú getur sofið rótt vitandi það að við erum sífellt að leita nýrra leiða til að draga úr áhrifum okkar á umhverfið.

Sjálfbærara líf heima

Betri bómull fyrir alla

Allir elska bómull þar sem hún er endingargott og mjúkt náttúrulegt efni sem andar vel. Við viljum fara vel með umhverfið og fólk og notum því aðeins bómull af sjálfbærari uppruna í vörurnar okkar, en það þýðir að minna af vatni, áburði og skordýraeitri er notað við ræktunina og á sama tíma fá ræktendurnir meira fyrir uppskeruna. Við látum þó ekki staðar numið þar því við erum sífellt að þróa nýjar leiðir til að gera heiminn að betri stað fyrir börnin okkar.

Efni

Hvað er bómull?

Bómull er ein af vinsælustu náttúrulegu trefjunum í heiminum í dag. Vefnaðarvara úr bómull er mjúk, endingargóð og það er hægt að þvo hana á háum hita. Hún andar einnig vel og dregur í sig raka – sem gerir það að verkum að gott er að hafa hana næst líkamanum. Við hjá IKEA notum meira og meira af endurunninni bómull og kappkostum að tryggja að öll ný bómull sem við notum sé ræktuð og unnin með minna magni af skordýraeitri, áburði og vatni.


Bæta við vörum

Aftur efst
+

Vöruvöktun

Áætlað magn

Tilkynning hefur verið stillt

X