HYLLIS
Áklæði,
60x27x140 cm, gegnsætt inni/úti

900,-

HYLLIS
HYLLIS

HYLLIS

900,-
Vefverslun: Uppselt
Með HYLLIS áklæði getur þú breytt opinni HYLLIS hillueiningu í lokaða hirslulausn. Hentar vel ef þú vilt vernda hlutina fyrir ryki eða ef hafa lítið gróðurhús innan- eða utandyra.
HYLLIS áklæði

HYLLIS skapar pláss fyrir líf á svölunum

Sum okkar búa þrengra en við viljum. Því fylgir oft endalaus leit að meira plássi. Svo því ekki að reyna að nýja rýmið sem við höfum betur? Það var eitthvað sem vöruhönnuðir okkar vildu hjálpa til með þegar þeir hönnuðu minni útgáfuna af HYLLIS. Hillu sem passar nánast hvar sem er og hentar vel ef þú vilt rækta kryddjurtir og smáplöntur.

Philip Dilé er einn þeirra sem eru á bak við HYLLIS, hann býr í íbúð með svölum í suðurhluta Svíþjóð. „Svalirnar mínar eru fullar af dóti. Ég mundi vilja nýta þær í eitthvað annað en geymslu og ég held að margir viðskiptavinir okkar séu á sama máli.“

Vörn fyrir náttúruöflunum

Það dugar sjaldnast að vera með nágranna fyrir ofan okkur til að skýla svölunum fyrir veðri, vindum og mengun. Því ákvað teymið að búa til áklæði á HYLLIS. Þau höfðu hana gegnsæja og með loftgötum. Því er möguleiki á að nota áklæðið og hilluna sem gróðurhús.

Vertu svalabóndi

„Ég rækta sjálfur kryddjurtir. Það sparar peninga og það er skemmtilegt að fylgjast með þeim vaxa á svölunum. Mér finnst að fólk sem er búsett í borgum ætti líka að geta ræktað smáar plöntur og kryddjurtir, jafnvel þó það sé ekki með garð,“ segir Philip. Með HYLLIS hillu og áklæði er það hægt, í litlu magni, og svalirnar nýtast þá í eitthvað meira en geymslu – sjálfbærara líf og betri nýting á plássi.

Sjá meira Sjá minna

Efni

Hvað er PE-plast?

PE, eða pólýetýlen, er fjölhæft plast sem hægt er að nota á ýmsan hátt. ÞAð getur bæði verið mjúkt og sveigjanlegt og hart og sterkt. Við hjá IKEA notum PE-plast í plastpoka, frystipoka, kælikubba og skurðarbretti. Ein ástæðan fyrir því að okkur líkar þessi tegund plasts er að hægt er að framleiða það úr endurnýjanlegum hráefnum eins og maís og sykurreyr.


Aftur efst
+

Vöruvöktun

Áætlað magn

Tilkynning hefur verið stillt

X