Hægt að tengja við helstu tónlistarstreymisveitur.
Hægt að nota með Airplay 2 svo þú getur streymt hljóði beint úr Apple-tækinu þínu.
Þú getur streymt tónlist, hlaðvarpi eða útvarpi í gegnum WiFi án þess að símtöl eða tilkynningar trufli. Tónlistin heldur áfram þrátt fyrir að síminn eða spjaldtölvan sé ekki nálægt.
Þú getur hengt hann á vegg einan og sér þar sem hann mun vekja ómælda athygli, látið hann falla inn með öðrum myndum á veggnum, tyllt honum á gólfið eða látið hann hallast upp að vegg.
Fæst í hvítu og svörtu og með mismunandi framhliðum sem má skipta út, þú getur því valið það útlit sem passar þér og heimilinu þínu.
Hægt að nota sem stakan hljóðgjafa eða með öðrum SYMFONISK eða Sonos-vörum til að stækka hljóðheiminn þinn.
Hægt að nota með Spotify Connect sem þýðir að þú getur streymt tónlist beint frá Spotify-appinu í hátalarann.
Allir SYMFONISK hátalararnir tengjast með WiFi svo þú getur skapað þann hljóm sem þú vilt á heimilinu. Hlustaðu á hlaðvarp í svefnherberginu á meðan einhver annar spilar tónlist í stofunni, eða láttu alla hátalara hússins spila sömu tónlistina samtímis.
Uppsetning SYMFONISK er einföld, stingdu hátalaranum í samband, náðu í Sonos-appið og fylgdu leiðbeiningum þess skref fyrir skref.
Henta vel ef þú vilt vera með tvo samsvarandi hátalara sem aftari hátalara í heimabíókerfinu.
Ef þú vilt hafa hljóðið víðóma getur þú haft tvo samsvarandi hátalara.
Við mælum með að nota bara IKEA framhliðar á myndaramma með hátalara til að ná fram bestu hljóðgæðunum.