Fimm þægindasvæði veita góðan stuðning og létta á þrýstingi á axlir og mjaðmir.
Teygjanlegt efni efst á dýnunni hreyfist með líkamanum til að hámarka þægindin.
Þú færð stuðning á réttum stöðum með sérpökkuðum pokagormum sem hreyfast hver fyrir sig og fylgja líkama þínum eftir.
Einkennandi áferðin á hliðinni á dýnunni fæst með náttúrulegum hör sem er hvorki litaður né bleiktur.
Dýnan færir þér gott loftflæði og þægindi í svefni því neðra lagið er úr náttúrulegum kókostrefjum sem gerir efninu kleift að anda.
Efnið sem er næst húðinni er úr 100% bómull af sjálfbærari uppruna.
Þar sem kanturinn á dýnunni er styrktur helst hann sléttur og stinnur og þægilegt er að sitja á honum.
Náttúruleg efni eins og náttúrulegt latex, kókostrefjar, bómull og ull veita aukin þægindi og stuðla að afar ánægjulegu svefnumhverfi með jöfnu hitastigi.
Hönnuð til að vera notuð á aðeins einni hlið.
Þessari fullbúnu dýnu fylgir 10 ára ábyrgð. Ábyrgðarskilmála er að finna á vefnum okkar, IKEA.is